Vefsala

Árangursrík markaðssetning á vefnum

Entries for the ‘Markaðssetning’ Category

Randy Pausch – Síðasti Fyrirlesturinn

Randy Pausch var prófessor við Carnegie Mellon. Hann flutti síðasta fyrirlesturinn sinn 18. September 2007 vitandi það að hann ætti ekki marga mánuði eftir ólifaða. Fyrirlesturinn kallaði hann “Raunveruleg uppfylling drauma æsku þinnar” og talar um sína eigin  drauma og drauma annarra og hvernig á að uppfylla draumana sína og aðstoða aðra við að uppfylla sína drauma.

Mæli sterklega með því að þú horfir á þetta myndband.

Sjónvarpið sýndi þátt um Randy í kvöld þar sem sýnd voru brot úr fyrirlestrinum.

Æskudraumar Randys:

  • Að vera í þyngdarleysi
  • Að leika í amerísku atvinnufótboltadeildinni NFL
  • Að skrifa grein í Encyclopediu
  • Að vera Captain Kirk (í Star Trek)
  • Að vinna tuskudýr
  • Að vera hugmyndasmiður hjá Disney

Skrifaðu athugasemd

Fjarstýrð þyrla

Þetta er eiginlega algerlega ótrúlegt! Hvernig þessi gaur getur sýnt þessar kúnstir á fjarstýrðri þyrlu.

Kannski best að láta bara myndirnar tala – ekki auðvelt að bæta neinu gáfulegu við þetta…

Skrifaðu athugasemd

Vantar þig heimasíðu?

Þarftu að búa til heimasíðu til að kynna þig og fyrirtækið þitt?

Vefsala.com býður nú ótrúlega hagstæð tilboð um hönnun og smíði á heimasíðu sem nær raunverulegum og mælanlegum árangri.

Kynntu þér hvernig heimasíða getur hjálpað þér:

Heimasíða – Hvað þarf að hafa í huga?

Skrifaðu athugasemd

Tvífarar – Trölli og Geir H. Haarde

Fékk sendar þessar áhugaverðu tvífara myndir:

Grinch

Trölli

Geir H Haarde

Geir H Haarde

Samsæriskenningasmiðir sjá oft skemmtilegar samlíkingar.

Þessi er nú ekki spurning. Vona bara að Trölla takist ekki að stela jólunum.

Athugasemdir (2)

Leit vegna markaðssetningar á vef

Search It!

Search It!

Hér er komið ótrúlega öflugt tól til þess að gera markaðsrannsóknir á vefnum.

Helstu leitarflokkar leitar eru:

  • Leitarorð (Keywords)
  • Lén (Domains)
  • CTPM aðferðafræðin
  • Vefrannsókn (Site Research)
  • Öflugri leit (Advanced Search)
  • Sértæk leit (Specialized)

Undir hverjum leitarflokki eru nokkrir möguleikar og hægt að prófa sig áfram og finna hvað hentar hverju sinni.

Leitin opnar í sérstökum litlum glugga sem gott er að hafa við hendina.

Smelltu hér til að gera markaðsrannsókn með Search It!

Skrifaðu athugasemd

Námskeið: Árangursrík viðskipti á vefnum

SiteSell Continuing Education

Yfirlit Námsefnis

Námskeiðið heitir á ensku: “Building A Successful Business Using The Internet”

Fólk og tölva

Árangursrík vefviðskipti

Námskeiðið er byggt á kenningum og reyndum aðferðum sem miða að því að byggja upp fyrirtæki sem nær árangri á vefnum með aðaláherslu á alþjóðlegan markað.

Með því að nota upplýsingar og tæki sem fylgja, eignast nemendur raunverulegt vefviðskiptafyrirtæki í enda námskeiðsins,.  Þeir munu eiga auðvelt með að láta viðskiptin vaxa með því að nota þekkingu sem þeir afla á námskeiðinu og með hjálp eftirfylgni og stuðnings.

Með því að nota háþróuð tól sem ekki þarfnast tæknilegrar þekkingar, leiðir námskeiðið nemendur skref fyrir skref í gegnum öll stig til að móta fyrirtæki á vefnum.

Forkröfur: Lesa og skrifa sæmilega ensku; Kunnátta til að skrifa einfaldan texta sambærilegan við innanhússtölvupóst; brennandi áhugi á að koma á fót viðskiptum á vefnum eða að styrkja núverandi vefviðskipti.

Tölvur: Háskólinn útvegar tölvuvætt kennsluherbergi. Nemendur þurfa að hafa tölvu og netsamband við Internetið fyrir heimaverkefni.

Lengd námskeiðs: Námið skiptist í 10 kennsludaga með þremur kennslustundum í hvert sinn, samtals 30 klukkustundir. Nemendur taka þátt í að þróa notkunartilvik (case study) fyrir vefviðskipti, sem hjálpar þeim að þróa eigin viðskiptalausn.

Vinnuframlag: Ætlast er til að nemendur mæti í alla tíma og verji að minnsta kosti átta tímum á viku í að æfa og útfæra það sem þeir hafa lært.

Námsefni:

  1. Skilningur á “PREselling” (samanborið við. “sala”) — Innihald -> Umferð -> PREsell -> Tekjur hugmyndafræðin; dæmi um velgengni; frumherjahugsun; þekkingarlindir á vefnum
  2. Hugarflug um viðskiptahugmyndir – ólíkar gerðir vefviðskipta; frumherji/upplýsingaherji; byggt á ástríðu / áhugamáli / reynslu
  3. Framkvæmd nákvæm markaðsrannsókn á vefnum – lárétt og lóðrétt hugarflug; greining á framboði og eftirspurn
  4. Val á árangursríku léni – samþætt viðskiptahugmynd; finna laus lén; skráning léns
  5. Val á viðeigandi útliti og virkni – notkun staðlaðra og breyttra sniðmáta; ræsing og uppfærsla
  6. Þróun á innihaldi vefsins – helstu kaflar eins og í bók; notkun upplýsinga og tóla á vefnum; meta samkeppni; skrifað fyrir gesti vefsins
  7. Búa til vefsíður sem eru leitarvélavænar – greina innihald vefsíðna; innfelling leitarorða; skipulag efnis í kafla og greinar
  8. Samþætting við “PREselling” tækni – notkun gjafa í skiptum fyrir tölvupóst; bjóða vefbækur; bjóða ókeypis fræðslu á vefnum
  9. Kynna fyrirtækið á margvíslegan máta – ókeypis umferð frá leitarvélum og lénalistum (directory); bloggun; auglýsingar; vef-fréttabréf; tengsl; samstarf
  10. Útfærsla þaulreyndra aðferða við tekjuöflun – samþætting við innihaldstengdar auglýsingar; að gerast “affiliate” fyrir vörur og þjónustu annarra fyrirtækja.

Kennslugögn sem fylgja:

Námskeiðið inniheldur: (1) fullbúið sett af samþættum hugbúnaði, (2) ýtarlegt kennslu- og stuðningsefni með vefaðgangi og (3) nokkrar klukkustundir af kennslumynduböndum.

Nemandinn notar öll þessi gögn á kennsludögum, fyrir heimaverkefni og síðar til að búa til og reka viðskiptavef.

Hafðu samband ef þú vilt fá meiri upplýsingar.

Athugasemdir (1)

Markaðssetning á vef – skref fyrir skref

Vefurinn eða Internetið hentar að sjálfsögðu vel til markaðssetningar. Kostnaður er tiltölulega lítill, markaðurinn er nánast ótakmarkaður að stærð og stækkar stöðugt.

Áður en lengra er haldið er rétt að segja aðeins frá því hvers ég tel mig vita eitthvað um markaðssetningu á vef. Þá er nærtækast að nefna árangur okkar á þessu sviði…

Árangur okkar

4x4OffRoads.com

4×4OffRoads.com er langvinælasti jeppavefur landsins og þó víðar væri leitað. Vefinn sækja heim á milli fjögur og sex þúsund einstakir gestir á hverjum degi. Áskrifendur að fréttabréfinu eru orðnir fleiri en sex þúsund.

Art-Iceland.com

Art-Iceland.com fjallar um íslenska list og er bæði á íslensku og ensku. Vefinn heimsækja tvö- til þrjúhundruð gestir á dag. Konan mín er listakona og var með gallerí í samvinnu við fjórar aðrar listakonur. Við ákváðum að gera markaðsvef sem væri í okkar eigu og ekki takmarkaður við þessar upphaflegu konur. Fyrir rúmlega ári síðan opnuðum við okkar eigið gallerí á Skólavörðustíg 1A.

Digital-Photo-Web.com

Digital-Photo-Web.com er nýjasti vefurinn og er ætlað að sameina vefi Álfatungls ehf. undir einum hatti. Vefurinn er nær engögnu á ensku og geymir fróðleik um hvernig á að búa til vefi sem byggja á myndum og ná árangri.

Raunveruleikinn og vefurinn

Staðsetning, staðsetning, staðsetning

Ef þú ætlar að hefja viðskipti í raunveruleikanum eru það þrjú atriði sem skipta mestu máli:

Staðsetning, staðsetning, staðsetning…

…Það er lykilatriði að vera aðgengilegur fyrir sem flesta viðskiptavini. Það er engin tilviljun að flestar búðir í Reykjavík eru staðsettar í miðbænum.

Upplýsingar, upplýsingar, upplýsingar

Í vefheimum er þessu svolítið öðruvísi farið, þar eru það önnur þrjú atriði sem skipta mestu:

Upplýsingar, upplýsingar og upplýsingar…

…fólk notar nefnilega vefinn til að leita að upplýsingum. Þeir sem gefa réttar og góðar upplýsingar fá gesti í heimsókn sem síðar geta ákveðið að hefja viðskipti ef þeir eru ánægðir með það sem að þeim er rétt.

Hugmyndafræði vefsins

Til að skilja hvernig þetta þarf að virka er gott að skoða þessa mynd af nauðsynlegu ferli:

Upplýsingar->Umferð->Kynning->Tekjur

Frábært INNIHALD er grunnurinn sem allt þarf að byggja á.

UMFERÐ skapast í framhaldi af góðu efni (innihald) ásamt öflunar tengla og fleiri aðferðum.

KYNNING er í raun undirbúningur fyrir sölu. Veita viðskiptavinum gæða upplýsingar í vingjarnlegu umhverfi.

TEKJUMYNDUN er lokaskrefið og getur t.d. falist í sölu á vöru eða þjónustu.

Hvað vil ég gera við vef sem markaðstæki? – Ég vil að sjálfsögðu byggja upp fyrirtæki til lengri tíma. En verð að sjálfsögðu að hafa í huga að það tekur allt tímaáhuga og þolinmæði.

Vefurinn getur verið gríðarlega öflugt markaðstæki. Aðalatriðið er að vefurinn þarf að byggja á gæðaupplýsingum – Flott útlit er EKKInauðsynlegt – þó það sé ekki verra.

Til að búa til upplýsingar og skapa gæða innihald þá skrifa ég mikið af greinum frá eigin brjósti. Þannig verður vefurinn persónulegri og vingjarnlegri fyrir gesti. Lykilatriði er að vera heiðarlegur í öllu sem gert er á vefnum og koma fram undir eigin nafni.  Helst þarf að “OVERdeliver-a” – eða gera mun betur en lesandinn á von á. Einnig þarf að muna eftir að halda sig við þema vefsins og vera ekki með greinar eða tengla sem tengjast efni vefsins lítið sem ekkert.

Gott er að safna tengingum frá öðrum vefum og er t.d. upplagt að taka þátt í spjallvefum og leggja þá eitthvað gáfulegt til mála.  Eins er upplagt að senda greinar í fjölmiðla. Fjölmiðlar hafa yfirleitt alltaf áhuga á góðu efni sem ekki hefur komið fyrir sjónir lesenda þeirra áður.

Heildarmyndin

Heildarmyndin

Árangursríkur og velheppnaður vefur er eins og vel smurð vél þar sem umferð kemur frá leitarvélum og tenglum ásamt auglýsingum eins og Google AdWords.

Vefurinn þarf að byggja á þínum hugmyndum og áhuga þar sem þú kemur upplýsingum á framfæri og skapar kynni við lesandann. Fréttabréfið virkar sem regluleg áminning um að vefurinn sé til og eykur á upplýsinga- og tengslagildið.

Árangur vefsins er mögulegt að mæla með sölu á vörum og þjónustu ásamt auglýsingum eins og t.d. Google AdSense.

Árangur – Leitarvélar

Það er mikilvægt að vera sýnilegur í leitarvélum. Þá þarf að vera viss um að finnast fyrir ákveðin lykilorð sem tengjast efni vefsins og helst að komast í hóp tíu efstu niðurstaðna sem tryggir að þú sést á fyrstu síðu.

Leitarvél

Hér er leitað að “art iceland” og vefurinn okkar Art-Iceland.com kemur upp í fyrsta sæti. Ef leitað er að “Íslensk list” kemur svipuð niðurstaða í ljós.

Leitarorð – Markaðsrannsóknir

Hægt er að framkvæma einfaldar markaðsrannsóknir á leitarorðum (stundum kölluð (“lykilorð”) sem leitað er að. Þá er fundið út framboð og eftirspurn og fundin leitarorð sem hafa lágt framboð en mikla eftirspurn. Þannig er hægt að velja efni sem skortur er á upplýsingum um.

Ef við skoðum t.d. framboð þegar leitað er að “art iceland” þá sýnir Google okkur þessar upplýsingar í hvert skipti sem leitað er:

Results 1 – 30 of about 12,700 for “art iceland”. (0.16 seconds)

Framboðið er því 12.700 síður á Internetinu sem fjalla um “art iceland”.

Til að skoða eftirspurn er t.d. hægt að nota þessa slóð:

http://inventory.overture.com/

Með því að slá inn “iceland” kemur svar um hversu oft var leitað í síðasta mánuði:

Eftirspurn

Hægt er að “grafa sig niður” með því að smella aftur á lykilorð sem birtist, t.d. “iceland air” – þá kemur upp listi með lykilorðum sem innihalda þau orð.

SiteBuildIt! – Tól og tæki

Ég var svo heppinn að rekast á tól sem hjálpaði mér að skilja hvernig vefurinn virkar sem markaðstæki og inniheldur þau tól og tæki sem þarf til að byggja árangursríkan vef.

  • SiteBuildIt! byggir á þeirri hugmyndafræði sem hér er kynnt. Hugmyndafræðin sem skammstöfuð er á ensku C->T->P->M.
  • Með “Action Guide” fær maður leiðbeiningar í texta og lifandi myndum – þar sem þú ert leiddur áfram skref fyrir skref í átt að skýru markmiði.
  • SBI! inniheldur sérstakt hugarflugstæki til að rannsaka framboð og eftirspurn hundraða lykiorða og ákveða þema vefsins.
  • Þegar tími er til kominn er síðan hægt að taka frá nýtt lén og vefurinn hýstur á öruggan máta.
  • SBI! býður upp á fjölda mögulegra sniðmáta fyrir útlit auk þess sem hægt er að hanna eigin útlit með notkun hefðbundinna veftóla.
  • Leiðbeiningar og hjálp við að skrifa innihaldið.
  • Auðvelt er að búa til fréttabréf, safna áskrifendum og senda út.
  • SBI! lætur sjálfkrafa leitarvélar vita hæfilega oft.
  • Einnig er umræðuvefur til að spá og spekúlera um hvernig best er að markaðssetja vef.

SiteSell

Það er alltaf gaman að skoða mælanlegan árangur. Þó að 4×4OffRoads.com sé ekki í raun að keppa á íslenska markaðnum er hægt að bera saman umferð við stærstu íslensku vefina skv. Teljari.is.

Teljari.is

Teljari.is

Tölur fyrir vikuna: 25.08.2008-31.08.2008

Eins og þú sérð væri 4×4OffRoads.com um það bil í sjöunda sæti yfir stærstu íslensku vefina. Þar sem vefurinn er ekki takmarkaður við innlendan markað eru ennþá gríðarlegir vaxtamöguleikar í framtíðinni.

Markaðsvefur – Pakkalausn

Vefsala.com hefur hug á að aðstoða lítil og stór fyrirtæki við að koma sér á framfæri á vefnum. Í því skyni höfum við sett saman þrjár pakkalausnir sem þú getur valið úr:

Grunn pakkinn – 130.000:

  • Búið til með SBI!
  • Einfaldur vefur
  • Lén .com eða .net
  • Fyrirtækið, vörur/þjónusta, fréttir, hafa samband
  • Staðlað HTML og CSS – einfalt og létt
  • 10-25 síður af efni
  • Verð tilboð 130.000 + VSK
  • Þjónustugjald á mánuði 7.000 + VSK
  • Dæmi: SigloSeigur.Net

Hagstæði pakkinn – 370.000:

  • Búið til með SBI!
  • Innihaldsríkur vefur
  • Aðstoð við hugmyndavinnu efnis – lykilorð og skipulagning
  • Hönnun á logo og útliti
  • Uppsetning á fréttabréfi
  • Lén .com eða .net
  • Fyrirtækið, vörur/þjónusta, fréttir, hafa samband og fleiri liðir eftir því sem við á.
  • Staðlað HTML og CSS – einfalt og létt
  • Verð tilboð 370.000 + VSK
  • Þjónustugjald á mánuði 17.000 + VSK
  • Möguleiki á viðbótum – t.d. aukatungumál o.fl.

SiteBuildIt! – USD 299:

  • Búðu til þinn eiginn markaðsvef frá grunni.
  • Öll tól sem þarf.
  • Hægt að byggja vef án mikillar kunnáttu í tölvunotkun.
  • Verð aðeins USD 299.
  • Ábyrgð – Ef þú ákveður innan 30 daga að SBI henti þér ekki – færð þú endurgreitt að FULLU.
Panta markaðsvef
  1. (þarf að skrá)
  2. (gilt tölvupóstfang)
  3. Vefur
 

cforms contact form by delicious:days

Athugasemdir (1)