Hrafnhildur Inga Sigurðardóttir hefur nú opnað nýjan vef í samstarfi við Vefsala.com.
Vefurinn kynnir Hrafnhildi Ingu sem listamann og þó aðallega málverk sem hún er að mála. Vefurinn er í anda málverkanna, þar sem einfaldleikinn er í fyrirrúmi.
Markmiðið var að gera vefinn í minmalista stíl. Þannig að hann væri eins einfaldur og nokkur kostur er án þess að hætta sé á að fólk viti ekki hvar það er statt eða upplýsingagildi tapist.
Í viðbót við málverkin sjálf, geymir vefurinn upplýsingar um feril listakonunnar, fréttir af listviðburðum auk sérstakrar síðu til þess að hafa samband við Hrafnhildi eða gerast aðdáandi á Fésbókinni.
Hrafnhildur málar með olíulitum og er með vinnustofur í Garðabæ og í Fljótshlíð. Verkin eru mikið tengd veðri og samspili þess við náttúruna.
Slóðin á vefinn er: hrafnhilduringa.com og vefurinn er bæði á íslensku og ensku.
