Mér hefur fundist kostnaður við að hýsa .is lén á Íslandi vera óþarflega mikill.  Hýsing hjá erlendum stórum hýsingaraðilum hefur stöðugt orðið ódýrari. Til þess að nýta sér þessa ódýrari sleppa með ódýrari hýsing á .is vef getur þú notað aðferðina sem hér er lýst.

Kaup á .is léni

Eina leiðin til að kaupa lén með .is endingu er að kaupa frá ISNIC sem sér um öll lénamál fyrir Ísland. Verðið hefur aðeins verið að lækka og er nú 7.918 krónur með VSK.

ISNIC - Nýtt lén

ISNIC - Nýtt lén

  • Opnaðu ISNIC
  • Byrjaðu á því að stofna þig sem “tengilið” með því að velja Tengiliðir/Nýskráning. Þar velur þú lykilorð og færð úthlutuðu svokölluðu NIC-auðkenni
  • Veldu síðan Lén/Nýskráning og skráir inn nafn lénsins sem þú ætlar að nota með .is endingu (sleppa www)
  • Stilltu vistunaraðila léns á 1984.is. Þá eru nafnaþjónar (DNS þjónar) sjálfkrafa settir

Ódýr vefhýsing

BlueHost er einn af þeim erlendu hýsingaraðilum sem geta hýst Íslensk lén og gert það mjög ódýrt, þar sem hægt er að hýsa ótakmarkaðan fjölda léna fyrir eitt lágt gjald (nú USD 6,95 á mánuði). Ég hef notað hýsingu hjá þeim lengi og gengið mjög vel, góður uppitími og þjónusta þegar á þarf að halda sem er ekki oft.

Ódýr vefhýsing

Ódýr vefhýsing

Velja heiti á .com vef

Velja heiti á .com vef

Í upphafi getur þú valið .com lén sem fylgir með áskriftinni. Þar getur þú valið hvað sem er, t.d. nafnið þitt eða annað sniðugt sem þér dettur í hug

BlueHost - cPanel

BlueHost - cPanel

BlueHost gefur þér nú aðgang að umsjónarviðmótinu cPanel sem lítur svona út. Þar eru ýmsar upplýsingar um hýsinguna í dálki vinstra megin og aðgangur að uppsetningu og umsjónarkerfum í grúppum í megindálki.

IP tala vefhýsingarinnar

IP tala vefhýsingarinnar

Neðst í vinstri dálki getur þú séð IP töluna sem vefurinn þinn starfar á (Shared Ip Address). Skrifaðu þessa tölu niður.

Ókeypis DNS

Margir hýsingaraðilar rukka fyrir hýsingu á DNS þjónum. Þar er frábær undantekning 1984.is sem býður frítt DNS.

Ókeypis DNS frá 1984.is

Ókeypis DNS frá 1984.is

  • Opnaðu 1984.is
  • Smelltu á “Nýskráning” efst í hægra horni og veldu þér notendanafn og lykilorð
  • Veldu “FreeDNS” á valmyndinni og skráðu þig inn
  • Undir FreeDNS velja “Bæta við léni”
  • Þá getur þú slegið inn nafnið á léninu og IP-tölu frá hýsingaraðila

Bæta léni í hýsingu

Nú er bara eftir að bæta léninu við hjá BlueHost.

  • Smelltu á “Domain Manager” í cPanel (sést á myndinni að ofan)
Bæta við léni í hýsingu

Bæta við léni í hýsingu

  • Smelltu nú á “Add Domain” hnappinn til hægri á skjánum.
Skrá upplýsingar um .is lénið

Skrá upplýsingar um .is lénið

Að lokum þarftu að skrá nafn lénsins í þetta form. Í þessu dæmi heitir nýi vefurinn “felagi.is”. Í skrefi 2 (Step 2: Verify Ownership) er nú sjálfkrafa leitað að DNS stillingum og gæti verið að þú þurfir að prófa aftur síðar ef það kemur ekki staðfesting strax.

Athugaðu að DNS breytingar geta tekið allt að sólarhring, þó oftast sé það styttri tími.

Vona að þessar leiðbeiningar komi að gagni við að gera vefhýsinguna þína ódýrari.

Þrándur