Námskeið: Árangursrík viðskipti á vefnum
SiteSell Continuing Education
Yfirlit Námsefnis
Námskeiðið heitir á ensku: “Building A Successful Business Using The Internet”

Árangursrík vefviðskipti
Námskeiðið er byggt á kenningum og reyndum aðferðum sem miða að því að byggja upp fyrirtæki sem nær árangri á vefnum með aðaláherslu á alþjóðlegan markað.
Með því að nota upplýsingar og tæki sem fylgja, eignast nemendur raunverulegt vefviðskiptafyrirtæki í enda námskeiðsins,. Þeir munu eiga auðvelt með að láta viðskiptin vaxa með því að nota þekkingu sem þeir afla á námskeiðinu og með hjálp eftirfylgni og stuðnings.
Með því að nota háþróuð tól sem ekki þarfnast tæknilegrar þekkingar, leiðir námskeiðið nemendur skref fyrir skref í gegnum öll stig til að móta fyrirtæki á vefnum.
Forkröfur: Lesa og skrifa sæmilega ensku; Kunnátta til að skrifa einfaldan texta sambærilegan við innanhússtölvupóst; brennandi áhugi á að koma á fót viðskiptum á vefnum eða að styrkja núverandi vefviðskipti.
Tölvur: Háskólinn útvegar tölvuvætt kennsluherbergi. Nemendur þurfa að hafa tölvu og netsamband við Internetið fyrir heimaverkefni.
Lengd námskeiðs: Námið skiptist í 10 kennsludaga með þremur kennslustundum í hvert sinn, samtals 30 klukkustundir. Nemendur taka þátt í að þróa notkunartilvik (case study) fyrir vefviðskipti, sem hjálpar þeim að þróa eigin viðskiptalausn.
Vinnuframlag: Ætlast er til að nemendur mæti í alla tíma og verji að minnsta kosti átta tímum á viku í að æfa og útfæra það sem þeir hafa lært.
Námsefni:
- Skilningur á “PREselling” (samanborið við. “sala”) — Innihald -> Umferð -> PREsell -> Tekjur hugmyndafræðin; dæmi um velgengni; frumherjahugsun; þekkingarlindir á vefnum
- Hugarflug um viðskiptahugmyndir – ólíkar gerðir vefviðskipta; frumherji/upplýsingaherji; byggt á ástríðu / áhugamáli / reynslu
- Framkvæmd nákvæm markaðsrannsókn á vefnum – lárétt og lóðrétt hugarflug; greining á framboði og eftirspurn
- Val á árangursríku léni – samþætt viðskiptahugmynd; finna laus lén; skráning léns
- Val á viðeigandi útliti og virkni – notkun staðlaðra og breyttra sniðmáta; ræsing og uppfærsla
- Þróun á innihaldi vefsins – helstu kaflar eins og í bók; notkun upplýsinga og tóla á vefnum; meta samkeppni; skrifað fyrir gesti vefsins
- Búa til vefsíður sem eru leitarvélavænar – greina innihald vefsíðna; innfelling leitarorða; skipulag efnis í kafla og greinar
- Samþætting við “PREselling” tækni – notkun gjafa í skiptum fyrir tölvupóst; bjóða vefbækur; bjóða ókeypis fræðslu á vefnum
- Kynna fyrirtækið á margvíslegan máta – ókeypis umferð frá leitarvélum og lénalistum (directory); bloggun; auglýsingar; vef-fréttabréf; tengsl; samstarf
- Útfærsla þaulreyndra aðferða við tekjuöflun – samþætting við innihaldstengdar auglýsingar; að gerast “affiliate” fyrir vörur og þjónustu annarra fyrirtækja.
Kennslugögn sem fylgja:
Námskeiðið inniheldur: (1) fullbúið sett af samþættum hugbúnaði, (2) ýtarlegt kennslu- og stuðningsefni með vefaðgangi og (3) nokkrar klukkustundir af kennslumynduböndum.
Nemandinn notar öll þessi gögn á kennsludögum, fyrir heimaverkefni og síðar til að búa til og reka viðskiptavef.

November 22nd, 2008 at 1:32
[...] er sannfærður um að nú er enn meiri þörf á námskeiði eins og þessu. Við höfum mikla þörf fyrir að byggja upp raunverulega útrás þar sem hægt er að breyta [...]