Stefnumótun Vefsins
Mar.04, 2009 in
Markaðssetning
Hvort sem maður ætlar að smíða hús eða búa til vef er nauðsynlegt að hafa skýr markmið til að vinna að.
Gott er að móta stefnuna upp í ákveðnum skrefum:
- Megingildi - Hvaða þrjú lykilatriði eiga að mynda grunninn að framtíðarsýn okkar?
- Hlutverk - Hvert er hlutverk vefsins? Hverjum þjónar hann?
- Framtíðarsýn - Hvernig lítur vefurinn út eftir eitt ár eða fimm ár?
- SVÓT - Styrkleikar – Veikleikar – Ógnanir og Tækifæri – Þarf ekki að vera svo flókið að taka saman nokkra punkta um hvern lið.
- Mælanleg markmið - Setja fram nokkur atriði sem hægt er að mæla. Hversu margir heimsækja vefinn á hverjum degi? Hversu margar heimsóknir skila sér í sölu, áskrift eða öðru sem við viljum ná fram?

Leave a Reply