SVEF eru samtök vefiðnaðarins. Þau eru nú að halda ráðstefnu um veflausnir og veita síðan Íslensku vefverðlaunin 2008. Ég ætla að mæta og hvet þig til að gera það líka ef þú getur þar sem ráðstefnan er ókeypis fyrir félagsmenn SVEF.

Við minnum á að Íslensku vefverðlaunin 2008 verða veitt í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi þann 30. janúar næstkomandi og hefst dagskráin með hanastéli kl. 17:00.

Fyrr um daginn standa Samtök vefiðnaðarins fyrir ráðstefnu um vefmál þar sem úrval innlendra fyrirlesara munu halda erindi og sitja fyrir svörum. Yfirskrift ráðstefnunnar er Veflausnir.

Ráðstefnan hefst kl. 14:00 og er aðgangur ókeypis fyrir félagsmenn SVEF.

Athugið að nauðsynlegt er að skrá sig á ráðstefnuna. Félagar í SVEF geta smellt hér til að skrá sig á ráðstefnuna. Nýir félagar geta skráð sig á ráðstefnuna um leið og þeir skrá sig í félagið.

Veflausnir ráðstefna – dagskrá:

Uppskeruhátíð vefiðnaðarins
- ávarp frá Samtökum vefiðnaðarins.
Markaðssetning í núverandi umhverfi

- Magnús Bergsson, Framkvæmdastjóri Sölusviðs EVE.Online.
Dótakassi vefstjórans
- Einar Gústafsson, vefstjóri Nýja Glitnis.
Open source í daglegum rekstri
- Frosti Sigurjónsson, Framkvæmdastjóri og stofnandi DoHop.
Kreppuspilið – frá hugmynd að veruleika
- Jónas Björgvin Antonsson framkvæmdastjóri Gogogic
Hugmyndaráðuneytið
- Guðjón Már Guðjónsson, frumkvöðull og framkvæmdastjóri Industria.
Upplýsingabyltingin: Sagan er ekki lengur skrifuð af sigurvegaranum
- Þórlaug Ágústsdóttir, stjórnmálafræðingur og formaður SVEF.

Til úrslita Vefverðlaunanna 2008 keppa:

Besti sölu- og þjónustuvefurinn

Besti fyrirtækjavefurinn

Besti vefur í almannaþjónustu

Besti afþreyingarvefurinn

Besta útlit og viðmót

Besti einstaklingsvefurinn

Að auki verða veitt sérstök verðlaun - Besti íslenski vefurinn 2008 og Bjartasta vonin 2008 úr hópi allra þeirra vefja sem keppa til úrslita.
Stjórn SVEF
Kær kveðja,