Vefsala

Árangursrík markaðssetning á vefnum

Í bítið á Bylgjunni – Viðtal IcelandVacation.is

Viðtal við Þránd vegna opnunar IcelandVacation.is

Heimir og Kolla skoða möguleika á að fólk afli aukatekna með því að leigja út sumarhúsið sitt.

Hlusta á viðtalið…

IcelandVacation.is – Vefur fyrir erlenda ferðamenn sem hafa áhuga á að heimsækja Ísland og eru mögulega að leita að gistingu í huggulegum bústað.

Bústaðaleiga.is – Er systurvefur IcelandVacation.is og er fyrir íslendinga. Bæði þá sem eiga bústað og vilja leigja og líka aðra sem vilja dvelja í þægilegu og vel búnu sumarhúsi.

Sérfræðingurinn…

The Expert

Sérfræðingurinn

André er sérfræðingur

Hann er ekki:

  • Starfsmannastjóri
  • Markaðsstjóri
  • Skipulagsstjóri
  • Öryggisstjór
  • Samskiptastjóri
  • Upplýsingatæknistjóri
  • Verkefnastjóri
  • Skriftstofustjóri
  • Almannatengslastjóri
  • Vöruþróunarstjóri

Samt sem áður nær André að ljúka verkefninu :)

Veflausnir – Ráðstefna og Íslensku vefverðlaunin 2008

SVEF eru samtök vefiðnaðarins. Þau eru nú að halda ráðstefnu um veflausnir og veita síðan Íslensku vefverðlaunin 2008. Ég ætla að mæta og hvet þig til að gera það líka ef þú getur þar sem ráðstefnan er ókeypis fyrir félagsmenn SVEF.

Við minnum á að Íslensku vefverðlaunin 2008 verða veitt í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi þann 30. janúar næstkomandi og hefst dagskráin með hanastéli kl. 17:00.

Fyrr um daginn standa Samtök vefiðnaðarins fyrir ráðstefnu um vefmál þar sem úrval innlendra fyrirlesara munu halda erindi og sitja fyrir svörum. Yfirskrift ráðstefnunnar er Veflausnir.

Ráðstefnan hefst kl. 14:00 og er aðgangur ókeypis fyrir félagsmenn SVEF.

Athugið að nauðsynlegt er að skrá sig á ráðstefnuna. Félagar í SVEF geta smellt hér til að skrá sig á ráðstefnuna. Nýir félagar geta skráð sig á ráðstefnuna um leið og þeir skrá sig í félagið.

Veflausnir ráðstefna – dagskrá:

Uppskeruhátíð vefiðnaðarins
- ávarp frá Samtökum vefiðnaðarins.
Markaðssetning í núverandi umhverfi

- Magnús Bergsson, Framkvæmdastjóri Sölusviðs EVE.Online.
Dótakassi vefstjórans
- Einar Gústafsson, vefstjóri Nýja Glitnis.
Open source í daglegum rekstri
- Frosti Sigurjónsson, Framkvæmdastjóri og stofnandi DoHop.
Kreppuspilið – frá hugmynd að veruleika
- Jónas Björgvin Antonsson framkvæmdastjóri Gogogic
Hugmyndaráðuneytið
- Guðjón Már Guðjónsson, frumkvöðull og framkvæmdastjóri Industria.
Upplýsingabyltingin: Sagan er ekki lengur skrifuð af sigurvegaranum
- Þórlaug Ágústsdóttir, stjórnmálafræðingur og formaður SVEF.

Til úrslita Vefverðlaunanna 2008 keppa:

Besti sölu- og þjónustuvefurinn

Besti fyrirtækjavefurinn

Besti vefur í almannaþjónustu

Besti afþreyingarvefurinn

Besta útlit og viðmót

Besti einstaklingsvefurinn

Að auki verða veitt sérstök verðlaun - Besti íslenski vefurinn 2008 og Bjartasta vonin 2008 úr hópi allra þeirra vefja sem keppa til úrslita.
Stjórn SVEF
Kær kveðja,

Framtíð Íslands – Nýtt Lýðveldi

Loksins er kominn maður sem þorir að taka umræðuna um framtíð Íslands á næsta stig.

Allt of mikill tími hefur farið í að sannfæra ríkisstjórnina um að hún er löngu fallin. Í dag áttaði Björgvin G. Sigurðsson sig á því og sagði af sér (og er meiri maður fyrir).

Það er líka mikið áhugaverðara að horfa fram á veginn og ég er sammála því að það þarf að búa til alveg nýtt lýðveldi á Íslandi. Þess vegna styð ég þetta framtak og hvet þig til að gera það líka:

Nýtt Lýðveldi

Að þessari undirskriftarsöfnun stendur hópur Íslendinga sem telur brýnt að hefjast nú þegar handa við að endurreisa traust í þjóðfélaginu og efla virðingu fyrir reglum lýðræðis og grundvallarstofnunum samfélagsins.

Fólkið í landinu þráir nýtt upphaf og nýjar leikreglur ásamt endurreisn þeirra gilda sem þjóðin hefur um aldir lagt rækt við, gilda á borð við heiðarleika, samvinnu, ábyrgð og jöfnuð.

Við viljum með þessu framtaki mynda þverpólitíska breiðfylkingu um þau markmið sem koma fram í áskoruninni til forseta og Alþingis.

Hópurinn er óháður öllum stjórnmálaframboðum og hagsmunaöflum.

Njörður P. Njarðvík,

Ólína Þorvarðardóttir,

Tryggvi Gíslason,

Birgir Björgvinsson.

Iceland Vacation – Opnar ferðavef

Iceland Vacation

Iceland Vacation

Við höfum nú nýlega opnað vef sem er ætlað að markaðssetja Ísland og ferðamöguleika hingað fyrir erlendan markað. IcelandVacation.is er ætlað að aðstoða ferðalanga við að skipuleggja skemmtilegar og áhugaverðar ferðir. Vefurinn er ríkulega búinn myndum og greinum um hvernig best er að verja tíma sínum á ferð um landið.

Vefurinn er á ensku.

Vacation Iceland

Explore Iceland
Iceland is is your year round destination of choice. Iceland is not only a place for festivities and fun, but also a place where the whole family can engage in a multitude of outdoor activities or relax in a cozy vacation home, enjoy wast views, hot tubs, the winters northern lights or the endless days of summer.Vacation rentals
Plan your stay with Iceland Vacation, we provide quality vacation rentals all over Iceland to suit relaxing couples, families and even the most ardent of adventurers, all year round.

Vefurinn IcelandVacation.is er settur upp sem WordPress blogg og notar atahualpa útlitsþemað.

expert.is opnar fyrir skráningu sérfræðinga

expert.is

expert.is

Við Kjartan Bergsson erum farnir af stað með nýtt fyrirtæki sem heitir expert.is

Þetta er hugbúnaðarfyrirtæki sem tekur að sér stærri verkefni á Evrópska efnahagssvæðinu. Við erum nú að leita að sérfræðingum á öllum sviðum hugbúnaðargerðar og teljum að þetta sé gott tækifæri til að víkka starfssvið og þekkingu sérfræðinga um leið og íslensk hugbúnaðargerð er kynnt erlendis.

Ávinningur sérfræðinga

Með því að skrá þig hjá expert.is fæst margvíslegur ávinningur

  • expert.is sérfræðingar halda fullu sjálfstæði og þurfa ekki að stimpla sig inn hjá einhverju fyrirtæki.
  • Þú tekur þátt í verkefnavinnu sem hluti verkefnateymis. Verkefnin eru samningsbundin og með ákveðnum upphafs og lokadagsetningum. Sem sérfræðingur gerir þú verktakasamning við expert.is
  • expert.is er tryggur bakhjarl og leitast við að selja/útvega sem fjölbreyttust verkefni
  • expert.is gerir þér kleyft að nýta og markaðssetja þekkingu þína. Verkefnavinna expert.is er einnig  gríðarlega öflug leið til að koma þekkingu og getu þinni á  framfæri
  • Með skráningu hjá expert.is aukast líkur á að þú fáir tækifæri til að vinna að verkefnum við hæfi og um leið auka við þekkingu þína og getu

Skráðu þig sem sérfræðing á expert.is

Gleðileg Jól 2008 – Jólalag Baggalúts

Baggalútur er alltaf með hressari og skemmtilegri böndum. Í þessu lagi tekst þeim að benda á flest það sem aflaga hefur farið á Íslandi þetta ár sem nú er að líða.

Varla miklu við þetta að bæta. Segi bara:

Gleðileg Jól og farsælt komandi ár. Vonandi verður næsta ár betra en þetta og nýtt Ísland verði til á grunni rústanna.

Til að sækja lagið og fræðast meira um lagið…

Hér er svo textinn:

ÞAÐ KOMA VONANDI JÓL

Allflestar útgönguspár
eru á eina lund;
þetta var skelfilegt ár.
Hér út við heimskautsins baug
hnípin þjóð – þráðbeint á höfuðið flaug.

Allt þetta útrásarpakk
át á sig gat
svo loftbólan sprakk.
Nú eru lífskjörin skert, mannorðið svert,
Hvað hafið þið gert?

Það koma vonandi jól
með hækkandi sól.
Við skellum könnu upp á stól
og Sollu í kjól.
Þrátt fyrir allt
þrátt fyrir verðbólguskot
– þjóðargjaldþrot.

Við áttum íbúð og bens
og orlofshús.
Allt meikaði sens.
Góðgerðir gáfum og blóð
greiddum í – dulítinn séreignasjóð.

En nú er allt þetta breytt og eftir er
nákvæmlega ekki neitt.
Já nú er útlitið dökkt
ljósið er slökkt
og við erum fökkt.

Það koma vonandi jól
með hækkandi sól.
Þó vanti möndlu í graut
og amerískt skraut.
Þrátt fyrir allt
þrátt fyrir háðung og smán
– myntkörfulán.

Það koma vonandi jól
með hækkandi sól.
Við étum á okkur gat
af innlendum mat.
Og þrátt fyrir allt
misnotum sykur og salt.

Það koma vonandi jól
með hækkandi sól.
Við krössum afmælið hans
– heimslausnarans.
Því að þrátt fyrir allt
drekkum við mysu í malt.

Ég styð Obama…

…í því að HÆTTA að reykja.

Sá nefninlega þessa færslu hjá Agli Helga:

Ég styð Obama…

….í því að hætta ekki að reykja

Egill Helgason er nú skemmtilegur og allt það en stundum má hann aðeins passa sig. Ég er allavega svolítið hissa á þessari yfirlýsingu. Kannski er þetta spurning um pólitíska rétthugsun hjá honum ;)

Fyrir nokkrum árum var ég að vinna þar sem reykingar voru leyfðar í KAFFISTOFUNNI. Reyndar bara við eitt borð en í þessari litlu kaffistofu skipti það litlu máli þegar 4-5 kellingar (*) kveiktu sér í sígarettum og fóru að púa. Þar með fór matarlystin fyrir lítið og andrúmsloftið (það litla sem var eftir) var að auki hlaðið spennu þar sem ekki voru allir sáttir við að anda að sér menguðu lofti.

Smám saman hefur verið unnið að því að þrengja að reykingamönnum með reglugerðum og lögum og finnst sjálfsagt sumum gengið of hægt og öðrum of hratt.

Manni dettur nú í hug það sem einhver góður maður sagði einu sinni að “Frelsi þitt endar þar sem nefið á mér byrjar.”

Auðvitað er Obama “stór strákur” en vona samt að hann geri það sem er skynsamlegast. Ég er allavega of “lítill” og vona að fleiri komist að því að þeir eru það líka.

(*) Fyrir pólitíska rétthugsun er rétt að geta þess að ég nota þetta orð jafnt um karlkyns sem kvenkyns kellingar.

Randy Pausch – Síðasti Fyrirlesturinn

Randy Pausch var prófessor við Carnegie Mellon. Hann flutti síðasta fyrirlesturinn sinn 18. September 2007 vitandi það að hann ætti ekki marga mánuði eftir ólifaða. Fyrirlesturinn kallaði hann “Raunveruleg uppfylling drauma æsku þinnar” og talar um sína eigin  drauma og drauma annarra og hvernig á að uppfylla draumana sína og aðstoða aðra við að uppfylla sína drauma.

Mæli sterklega með því að þú horfir á þetta myndband.

Sjónvarpið sýndi þátt um Randy í kvöld þar sem sýnd voru brot úr fyrirlestrinum.

Æskudraumar Randys:

  • Að vera í þyngdarleysi
  • Að leika í amerísku atvinnufótboltadeildinni NFL
  • Að skrifa grein í Encyclopediu
  • Að vera Captain Kirk (í Star Trek)
  • Að vinna tuskudýr
  • Að vera hugmyndasmiður hjá Disney

Nýsköpun – Nyskopun.org

Nýsköpun er nokkuð sem ég hef lengi haft áhuga á – og ég lít reyndar á það sem ég hef verið að fást við í markaðssetningu á vefnum sem nýsköpun. Í þessum þrengingum öllum sem nú ganga yfir þjóðfélagið er meiri þörf en nokkru sinni fyrr á að menn taki höndum saman og búi til ný tækifæri.

Nyskopun.org er svona grasrótarhópur sem vill leiða saman áhugasama einstaklinga til þess að búa til eitthvað nýtt.

Þessi vefur er opinn vettvangur fyrir hugmyndir, upplýsingar og umræður um nýsköpun.

Þátttaka í umræðum og uppbyggingu efnis á vefnum er öllum opin, en að sama skapi tryggt að að honum komi áhrifa- og hagsmunaaðilar þannig að sú umræða og uppbygging skili árangri.

Vefnum er m.a. ætlað að kortleggja núverandi umhverfi til nýsköpunar og hvað betur mætti fara. Til þessa umhverfis teljast m.a. landslög, sjóðir, sprotafyrirtæki, frumkvöðlar, samtök aðila, stjórnvöld, ýmsar stofnanir, háskólar, fjárfestar, starfsfólk, samtök vinnuveitenda og launþega, lífeyrissjóðir, ofl.

Vefurinn mun einnig safna upplýsingum um aðferðir og árangur annarra landa í því að bæta umhverfi til nýsköpunar.

Í tengslum við vefinn er jafnframt rekið tengslanet, þar sem einstaklingar, frumkvöðlar, fyrirtæki, fjárfestar og stofnanir geta komið sér og aðkomu sinni á framfæri og stuðlað þannig að uppbyggilegri tengslamyndun.

Á vefnum er nú þegar að finna ýmislegt gagnlegt og m.a. lista yfir sprotafyrirtæki.

Ég geri mér vonir um að þekking sem Álfatungl býr yfir geti nýst til að aðstoða önnur sportafyrirtæki sem vilja sækja á erlendan markað annaðhvort sem verkefni eða með því að taka þátt í hugmynd frá fæðingu.

Ég vil hvetja þá sem telja sig hafa eitthvað til þessara mála að leggja að skrá sig á tengslanetið og nyskopun.org – frábært framtak!