Vefsala

Árangursrík markaðssetning á vefnum

Entries Tagged ‘4×4OffRoads.com’

Vefumferð íslenskra vefa skv. Alexa

Í framhaldi af greininni um markaðssetningu á vef þá datt mér í hug að nota aðra aðferð við að mæla árangur heldur en teljari.is (sem er sjálfsagt það nákvæmasta sem í boði er).

Alexa.com er virt fyrir nokkuð góða mælingu á vefum um allan heim. Hér tek ég saman efstu 10 vefi skv. teljari.is og ber þá saman við 4×4OffRoads.com

Raðað er í röð eftir raðnúmeri, þ.e. vinsælustu vefirnir eru efstir.

“Rank” er raðnúmer vefs af öllum vefum á Internetinu.

“Links in” er fjöldi vísana á vefinn.

Það sem er kannski skemmtilegast við þessar tölur er að allir þessir íslensku vefir eru með fjölda starfsmanna sem vinna við að setja inn efni og mikil vinna og peningar eru lagðir í vefina.

4×4OffRoads.com er hins vegar nánast eingöngu eins manns verk! Ekki mikið til að skammast sín fyrir ;)

Skrifaðu athugasemd

4×4OffRoads.com í þætti N4

Hér er þátturinn “Að norðan” frá N4 sjónvarpsstöðinni á Akureyri. Þátturinn fór í loftið 28. Ágúst 2008.

Ég fór semsagt í ferð með tveimur ameríkönum sem eru að vinna að heimildarmynd um ferð um Ísland. Þeir voru á mótorhjólum og ég á jeppa. Við fórum víða um landið. Stóran hring um Vesturland, Snæfellsnes, Akureyri, Húsavík, Mývatn og Sprengisand. Veðrið var reynar ekki alveg eins og best varð á kosið en þetta tókst allt saman ágætlega og verður spennandi að sjá endanlega útkomu.

Það sem var öðruvísi við þessa ferð var að við heimsóttum frábæra veitingastaði og hótel um allt land. Þar voru tekin upp atriði sem ættu að gefa mynd af matarmenningu íslendinga og viðhorfi þeirra til lífs og lands.

Skrifaðu athugasemd