Ég styð Obama…
…í því að HÆTTA að reykja.
Sá nefninlega þessa færslu hjá Agli Helga:
Ég styð Obama…
….í því að hætta ekki að reykja…
Egill Helgason er nú skemmtilegur og allt það en stundum má hann aðeins passa sig. Ég er allavega svolítið hissa á þessari yfirlýsingu. Kannski er þetta spurning um pólitíska rétthugsun hjá honum
Fyrir nokkrum árum var ég að vinna þar sem reykingar voru leyfðar í KAFFISTOFUNNI. Reyndar bara við eitt borð en í þessari litlu kaffistofu skipti það litlu máli þegar 4-5 kellingar (*) kveiktu sér í sígarettum og fóru að púa. Þar með fór matarlystin fyrir lítið og andrúmsloftið (það litla sem var eftir) var að auki hlaðið spennu þar sem ekki voru allir sáttir við að anda að sér menguðu lofti.
Smám saman hefur verið unnið að því að þrengja að reykingamönnum með reglugerðum og lögum og finnst sjálfsagt sumum gengið of hægt og öðrum of hratt.
Manni dettur nú í hug það sem einhver góður maður sagði einu sinni að “Frelsi þitt endar þar sem nefið á mér byrjar.”
Auðvitað er Obama “stór strákur” en vona samt að hann geri það sem er skynsamlegast. Ég er allavega of “lítill” og vona að fleiri komist að því að þeir eru það líka.
(*) Fyrir pólitíska rétthugsun er rétt að geta þess að ég nota þetta orð jafnt um karlkyns sem kvenkyns kellingar.
