Vefsala » Leitarorð

Leitarorð á Internetinu
Þegar þú notar Google (eða aðra leitarvél á Internetinu) til að finna upplýsingar sem þú ert að leita að slærð þú inn leitarorð (e. keyword) og færð til baka vefsíður þar sem fjallað er um þetta leitarorð.

Google er langöflugasta leitarvélin og veitir þér aðgang að gríðarlegum fjölda vefsíðna og tengir þær við leitarorð.  Síðurnar sem koma efst á fyrstu síðu eru að öllum líkindum þær síður sem veita bestu upplýsingarnar um viðkomandi leitarorð. Heildarfjöldi vefsíðna með leitarorðinu er FRAMBOÐ.

Á hverri stundu eru hundruðir milljónir manna að nota leitarorð til að finna upplýsingar á Internetinu. Sum leitarorðin er verið að leita að aftur og aftur. Fjöldi slíkra leitaroða er talað um sem EFTIRSPURN.

Það er því auðvelt að tala um framboð og eftirspurn.

Við markaðssetningu á Internetinu er mikilvægt að vera sýnilegur. Það er að sjálfsögðu best að vera á fyrstu blaðsíðu þegar tilvonandi viðskiptavinur er að leita að upplýsingum sem tengjast þínu fyrirtæki.

Tökum einfalt dæmi. Jóna er að leita að skemmtibát, hún slær því inn “skemmtibátur” og fær upp lista af áhugaverðum bátum.

Ef þú ert að selja skemmtibáta stendur þú betur að vígi ef þín vefsíða kemur fyrst upp.

Leitarorðarannsóknir

Því miður veit ég ekki til að til sé sérstök tól til að gera leitarorðarannsókn á Íslensku enn sem komið er.

Markaðskönnun leitarorða er undirstaðan að markaðsrannsókn á Internetinu. Fyrir einfalda könnun er hægt að nota ókeypis tól sem eru aðgengileg á vefnum:

WordTracker FreeKeywords – gefur góða hugmynd um hvaða orð eru vinsælli en önnur. Þú slærð inn leitarorð og færð upp lista þar sem þetta orð (eða orðasamband) kemur fyrir og hversu mikil eftirspurnin er. WordTracker virkar ekki vel á íslensk leitarorð. WordTracker er líka með fullkomnara tól sem kostar rúmlega 300 USD á ári.

Google AdWords Keyword Tool – gefur þér jafnvel enn skýrari mynd af vinsældum leitarorða. Auk eftirspurnar færð þú líka upplýsingar um framboð og margt fleira. Íslensk orð finnast – en er varla hægt að grafa djúpt í þau.

Rannsókn á leitarorðum hentar bæði fyrir hugmyndavinnu um nýjan vef auk þess að kynna sér samkeppnina.

Notaðu SearchIt! til að hjálpa þér við rannsókn á leitarorðum og öðrum atriðum tengdum vefsölu. Þú finnur það undir Markaðstól hér til hægri.